feitibolla feitibolla gefðu mér kartöflu

14.10.2007 12:20:26 / feitibolla

Bleikt og bleikt

Breytti útliti síðunnar í tilefni mánaðarins :D

Gleymdi að segja frá "ævintýrinu" sem við lenntum í úti.. Heiðrún og Haukur búa semsagt í Óðinsvéum, maður er svona einn og hálfan klukkutíma að keyra frá þeim að Kastrup flugvelli. Haukur var svo frábær að keyra okkur á flugvöllinn og til þess að komast á hann þarf maður að fara yfir eitt stykki brú og það kostar að fara yfir hana.. Þegar við vorum rétt nýkomin af brúnni. búin að keyra í um 30 min., spyr Haukur okkur hvaða terminal við séum að fara á... Við það fer heilinn af stað hjá mér og ég fæ þetta þvílíka sjokk.. jú ég hafði gleymt pössunum okkar og miða heima hjá þeim:^) OMG hvað mér brá því að þarna bættist við auka klukkutími í ferðalag og við höfðum skipulagt bílferðina þannig að hún gaf okkur auka korter plús þessa tvo tíma sem maður á vera búinn að tékka sig inn.. 8| En við gátum ekkert gert nema snúið við þar sem að passinn hans Hávarrs er eina skilríkið sem hann á :S Og ég vildi ekki taka neina sénsa á flugvellinum

Reyndar vorum við svo ótrúlega heppin að fluginu var seinkað um klukkutíma og við náðum þessu öllu á góðum tíma... var sko farin að skipuleggja það að fá gistingu yfir nóttina og alles hehehe8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 21:22:17 / feitibolla

Tími á smá blogg ;)

Weeellll long tæm nó sí hehehe

Það hefur einhvernveginn verið svo brjálað að gera að bloggið hefur bara alveg farið famhjá mér. Skólinn byrjaður jahh eða kannski löngu byrjaður, búin að gera held ég trilljón verkefni og ansi mörg eftir fyrir prófin *svitn* Af mér er nú allt gott að frétta búin að missa helling af kílóum en,....... það versta er kannski það að þetta eru alltaf sömu kílóin :^)  hehehe sem er nú kannski eins sniðugt... en verð þó að viðurkenna það að byrja í skóla hefur tekinn ansi mikinn tíma frá mér.. ég er meira að segja með þvílíka vöðvabólgu og ég sem hef aldrei fengið svona fjanda :cry: þetta er sko bara asskoti vont búhú...

Um seinustu helgi skruppum við Hávarr með mömmu til Heiðrúna syss í DK.. Ofur krúttið hennar og Hauks var nebblilega eins árs um helgina... og vá hvað þetta var geggjað að kíkja smá. Sérstaklega þar sem að hún kemur ekki heim um jólin :cry: fjandans próf alltaf hreint. Verð nú að viðurkenna það að ég notaði tækifærið og verslaði smá... oooohhh það er alltaf svo gaman að versla í útlöndum 8)

jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili... þarf að búa til mynd og gera nokkrar glærur :S


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 12:48:01 / feitibolla

Spennó spennó :D

Jahérna hér .... ég sit hérna með þvílíkt glott og er ekkert smá glöð og líka alveg skíthrædd um að vera gera einhverja vitleysu !!!!8)

Ég sótti nebblilega um í KHÍ.. leikskólakennarann í fjarnámi... og svarið var að detta inn hjá mér.. og ég komst INN... vá ég er bara ekki að ná þessu :D gerði svo innilega ekki ráð fyrir að komst inn hehe vá ... það á sko eftir að vera nóg að gera í haust hehe  jii er að verða skólastelpa aftur hehe

Annars er allt gott að frétta héðan.. er enn að fara í ræktina.. og er svo að fíla það hehe  eins gott að hreyfa sig smá áður en ég fer út..

jæja ég verð bara að fara og setjast aðeins niður hehe


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 20:54:52 / feitibolla

hmm...

Furðulegt hvernig maður þráir hluti ennþá meira þegar maður er nánast viss um geta ekki fengið þá.... hluti sem maður vissi ekki einu sinni að manni langaði í.. skrítið


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 17:28:34 / feitibolla

Hávarr Hrafn

Minnsta krúttið mitt heitir Hávarr Hrafn ofurkrútt:D hehe og var skírður því nafni núna í janúar.. en nafnið Hávarr með tveimur errum er ekki leyft eins og er..8| Við skiluðum inn beiðni um nafnið núna í byrjun júní og bíðum spennt eftir niðurstöðum... agalega gaman.. hehe þá hættir hann vonandi fljótlega að vera drengur Jónsson allstaðar ekki að það sé eitthvað slæmt hehe:lol:

Annars þá er júní búinn að vera einstaklega fljótur að líða.. ætli sumarið verði ekki búið áður en við vitum af... það er eins gott að fara gera eitthvað af þessum hlutum sem ég ætla mér að gera í sumar... úfff *svitn* það er nebblega slatti... ætlaði að vera búin að setja íbúðina á sölu en er ekki enn farin að huga að því hehe þetta er svo flott íbúð að hún selst eins og skot ... er það ekki alltaf gott að vera bjartsýn.. ég bara nenni ekki að fara flytja inn á einhvern með 3 börn .. það er bara alltof mikið 8| Það gengur annars bara alveg ágætlega með húsið ... bara alveg að verða fokhelt jafnvel bara í næstu viku 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 16:11:38 / feitibolla

Hæhó

hmmm... er ekki ágætt að ná tveimur bloggum í þessum mánuði hehehe...

Ég hef nú ekki setið aðgerðarlaus undanfarinn mánuð þó að ég hafi ekki haft tíma í blogga ... eða eiginlega bara fara í tölvuna yfir höfuð.. Er ennþá í átakinu og mæti fyrir utan það 3 sinnum í viku þannig að þetta er um 6 sinnum í viku.8) ég er bara alveg húkt á þessu., sem er nú ekki slæmt hehe:D og á námskeiðinu er ég búin að missa 2.7 :D er voðalega glöð með það hehe. Verð að viðurkenna það að ég hef ekki komið mér í danska en ég er sko ekki búin að gefast uppá því... ætli ég reyni ekki hann þegar ég kem heim frá DK í sumar hehe ... en sko ég er samt alveg búin að vera dugleg með mataræðið en það hefur ekki verið eftir danska hehe

Ég er svo að spá i að sækja um skóla.... er samt ekki alveg viss hvort ég hafi tíma í það núna.. með 3 börn og byggja hús.. en æææ ég hlýt að finna útúr þessu..

en nóg í bili þvottavélarnar bíða


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 21:29:35 / feitibolla

Yndislegt :Þ

Hef eiginlega ekki tíma til að skrifa þetta niður en ég bara verð.... já dagurinn í dag er búinn að vera 100% og það er sko ólýsanleg tilfining sem ég finn fyrir .... já ég er svo stolt af mér núna :D og núna finn ég sko afhverju ég er að gera þetta 8) og get ekki beðið að komast í spriklið á morgun :Þ

góða nótt


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 17:27:23 / feitibolla

Vá maí

Vá verð nú bara að segja fyrst að mér finnst alveg ótrúlegt að það komin maí... tíminn er ekkert smá fljótur að líða 8)

En allavega þá varð ekkert úr plönum frá því seinast... var heldur fljót á mér með brjóstagjöfin.. þannig að ég ákvað að setja hana í súpergír og reyna einu sinni enn að ná henni upp og ef að það myndi ekki ganga þá yrði ég bara hætt því að þetta var orðið soldið erfitt... líka af því að hin eldir þurfa líka athygli og umhyggju :D en eins og áður þá náði ég henni upp í nokkra daga og svo fór hún að minnka þó að ég breytti engu hjá mér þannig að ég er semsagt hætt með músina mína á brjósti:( og ég viðurkenni það alveg að ég var ekkert voðalega sátt við það og hann ekkert heldur en það er enginn smá munur á drengnum.. hann er farinn að brosa aftur og hlægja8) þannig að ég veit að það var alveg rétt ákvörðun hjá mér að hætta með hann á brjósti ;)

Þó að mataræðið hafi ekki verið uppá það besta þá er ég sko búin að vera með hugan að því að byrja.... ég meira að segja skráði mig á átaksnámskeið og byrjaði núna seinasta mánudag... og er ekkert smá spennt fyrir því :haha: þarf svo að koma mér á fund hjá DDV fljótlega. Byrjðai þó að borða eftir ddv í dag.. var farin að sakna þess að borða svona reglulega og góðan mat

Fór með alla fjölskylduna í göngutúr í gær .. vorum sko að vígja nýja kerru ... þetta var nú samt engin kraftganga en hreyfing þó.. vorum ótrúlega heppin að við vorum svo snemma á ferðinni að við vorum á undan rokin sem kom þegar við vorum rétt kominn inn ... en það er enginn spurning um að ég á eftir að drífa mig út núna og helst sem oftast

Jæja þarf að koma mér aftur í að fara í blogghring... ætli ég reyni það ekki í kvöld þegar gullin mín eru sofnuð.. átti nú líka eftir að linka inn á nokkur blogg sem ég er dugleg að fylgjast með

 kv. Rása tása


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 22:06:36 / feitibolla

Plani plan

Jæja þá er ég komin úr dvala.... :lol:er búin að liggja með barn á brjósti seinustu viku og hálfa og það er það eina sem ég hef einbeitt mér að....8) var orðin svo ofur stressuð á öllu saman.... að halda mig við danska og að ná mjólkinni upp og sinna hinum börnunum að ég var algerlega búin á því og þurfti gjörogsvovel að stoppa... og ákvað að taka eitt í einu því mjólkin var aðeins pínu pons farin að minnka verulega mikið og drengurinn grét allan daginn og var að fá eiginlega ekki neitt neitt :cry: .... þannig að ég byrjaði að huga litla brjóstalingnum og stoppaði á danska á meða... :Sborðaði mikið af næringarríkum og hitaeiningaríkum mat.... ;)og fékk mér meira að segja tvær tegundir af tei og töflur til þess að auka mjólkina8) og þetta er sko allt að koma... :D

Þannig að það þíðir ekkert annað en að byrja aftur á danska... brjóstagjöfin gekk nefnilega mjög vel þegar ég var á honum 100% ..... er sko búin að fylla ísskápin af grænmeti og ávöxtum og er búin að safna fullt af kjúklingi og fiski í frystinn og er sko farin að hlakka til að borða góðan og hollan mat.... já og líða vel og vera ánægð með mig ;) Hitti nebblega frænku mína í búð og henni fannst ég hafi lagt af :haha: og það var ekkert smá góð tilfinning :haha: og ég hugsaði vá hvað ég verð að halda áfram

jæja ég ætla svo að setja inn linka á fleiri átaksblogg sem ég hef verið að fylgjast með og fara í bloggrúnt í fyrramálið... það er sko búið að taka mig soldin tíma að koma þessu inn núna og þetta skrifað í miklum flýti .... og örugglega fullt af villum út um allt hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 00:30:02 / feitibolla

Tannpínupúki

Úff púfff... er sko búin að liggja í bóli með tannpínu.... já tannpínu takk fyrir ... :S fékk mér eina um seinustu helgi og ég lá gjörsamlega bara í rúminu af sársauka:evil: OMG hvað þetta var hræðilega vont... :cry: það lá við að ég fengi hann Jónsa minn til þess að rífa blessuðu tönnina úr.. en sem betur fer fékk ég tíma hjá tannsa8) á þriðjudaginn..... Hann hreinsaði gröft og ógeð úr tönnslu og gaf mér pensilín :( ... var sko komin með tvöfalda kinn ( að mínu mati) af bólgu og er enn mjög auð í kinnini og það er nú heldur vont að borða....

Eftir þetta brjálaða tanndrama og verkjlyfja át var brjóstamjólkin mín orðin heldur döpur... og er þvi búin að vera sötra mjólkuraukandi te í allan dag :S og það er sko hræðilega vont 8| þannig að ég skellit í mig einni malt í kvöld og ég er bara ekki frá því að það hafi bara virkað ;)

Af megrun er nú heldur lítið að frétta :^) eginlega bara ekki neitt.... gat náttla ekki borðað nema með öðrum helmingi tannana þannig að ég var nú ekki alveg að leggja í stór grænmetisát hehe eða að borða mikið yfir höfuð.... en...... það þýðir ekkert annað en að halda áfram.... ég ætla að komst aftur inn í þetta það þiðir ekkert annað:D er sko alveg ofrujákvæð núna og er svo svakalega spennt að það sé að hlýna ( vona að það haldist) :haha: hlakka til að geta farði í langa og góða göngutúra

jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili ætla nú að reyna að fara í bloggrúnt á morgun og bæta inn linkum á blogg sem ég kíki regluglega á ..... er einhver þarna sem ég má bæta við hehehe :haha: hummmm eða reyni nú að gera það um helgina

Gleðilega páska

Tásilíus


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 11:39:24 / feitibolla

Skuld

jæja varla komið hádegi og önnur færlsa dagsins komin 8) ætla síðan að kom með eina í kvöld og vonandi get ég verið voðalega kát og glöð með 100 % dag hehe

Eins og nafnið á færslunni gefur til kynna þá fór ég upp á frú vigt í dag um 1.3:$ verð nú að viðurkenna það að mér létti að þetta voru ekki tvö kíló svo nú er stefnan tekin á það að í næstu vigtun sem er eftir tvær vikur þá verði skuldin greidd upp :haha: það er sko bara harkan sex hér hehe

En ég keypi lakkrísduft í litlu boxi þegar ég var í vigtuninni og OMG hvað það er gott alveg eins og nammi bara ... svona eins og lakkrísduftið sem maður kaupir í dollunum úti í sjoppu.... þetta verður sko alveg spari 8) gleymdi nú alveg að spyrja úti það hvar ég ætti að krossa í þegar maður fær sér svona.... ef  einhver veit  það endilega segja mér :D

Jæja ætla skella í mig hádegismatnum og hlaupa út


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 09:25:25 / feitibolla

Well...

jæja ég verð nú bara að viðurkenna það að þessi vika er sko ekki búin að ganga vel....:frown: ég er búin að vera einhverstaðar annarstaðar og stopparinn minn týndur:$ og nú þarf ég sko að taka  vel á .. nenni þessu ekki lengur.. veit að ég get þetta vel 8)

ætla því að setja inn hvað ég borða helst á klukkutímafresti hehe nei kannski ekki alveg en það liggur við að ég þurfi á svoleiðis aðhaldi núna ;)

er semsagt búin að fá mér ristað brauð með osti og sultu og er í þessum töluðum... skrifuðum orðum að narta í appelsínu. planið er svo að fá mér drykkjarskyr í hádeginu þar sem ég verð á ferðinni.. og tómata ásamt brauðsneið..

Ætlaði að fara í vigtun í kvöld en þar sem að kallinn verður ekki kominn heim þá held að ég reyni frekar að fara núna í hádeginu.. það er auðveldara að hlaupa inn með eitt kríli í stól en að taka alla með ..

Kem síðan með töluna í kvöld..... já töluna upp :^)vona nú samt að það verði ekki mikið yfir tvö kílóin en ef svo er þá verð ég bara að vera dugleg að henta þeim aftur í burtu... :D ætli maður verði ekki að vera smá jákvæður líka svona uppá sálartetrið:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 23:18:12 / feitibolla

Hehe

Fékk þetta sent frá elskulegum eiginmanni mínum :D

 2. vika megrunar !

Það liggur við að manni líði svona hehe nei kannski ekki alveg hehe :D

Ég alveg steingleymdi því að ég keypti mér bol í DK en þegar ég kom heim ( til Heiðrúnar ) og mátaði hann ( nenni yfirleitt ekki að máta í búðum ;)  )komst ég að því að hann var of stór já of STÓR samt var hann í L :haha:  ótrúlega gaman... komst reyndar ekki í það að skipta honum en Heiðrún reddaði því


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 10:32:53 / feitibolla

Loksins

Jæja loksins kemur nýt blogg hjá frúnni 8)

Er sko búin að vera í dvala... með ungan kjúkling á brjósti... var orðin eitthvað ofur stressuð á öllu saman í seinustu viku og mjólkin var farin að minnka alveg rosalega mikið.. þannig að ég ákvað það að taka öllu rólega og vinna hana uppp.. :)

Ég gelymdi meira að segja að fara í vigtun á fimmtudaginn8|... það hefði verið svakalega gott að komast smá út og fá DDV beint í æð:D en aftur á móti þá náðum við fjölskyldan að setjast niður og borða saman eitthvað sem við höfuðum ekki náð að gera í langan tíma... :haha:og það var sko alveg þess virði :D smá endurnýjun á orku og gott að ná smá tökum og koma reglu á hlutina.. núna þessa vikuna stefni ég á að taka heimilið í gegn... löngu kominn tími á það heheh 8) eins gott að byrja núna strax.. þarf örugglega að henta mörgum svörtum ruslapokum af ýmsum hlutum sem við höfum safnað að okkur seinasta 6 og hálfa árið. Það er alveg ótrúlegt hvað maður nær að sanka að sér á svona stuttum tíma... það sko flæðir úr öllum skápum hér 8)

En sá danski hefur fengið að bíða þessa helgina en er komin á fullt núna hehehe er sko alveg búin að borða morgunmatinn minn hehe enn... þetta skal koma núna... manni líður svo svakalega vel í kroppi og hausakúlu þegar kílóin fjúka í burtu.. og læt mig dreyma um dökkt súkkulaði... læt það duga þó það sé alveg svakalega gott og voðalega hollt  já eða allavega hollara en mjólkursúkkulaði hehe

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:31:01 / feitibolla

Þetta vissi ég :D

jahá þetta hefði ég sko getað sagt ykkur fyrir löngu :D

Eftirfarandi frétt birtist á textavarpinu í dag:

Súkkulaði er allra meina bót, ef marka
má nýjar rannsóknir danskra vísinda-  
manna. Rannsókn sem gerð var við Mann-
eldisstofnun Kaupmannahafnarháskóla   
sýnir, að þeir sem borða dökkt súkku- 
laði lifi lengur en þeir sem ekki borða
það. Efni sem kallast polyfenol er í  
kakóinu sem súkkulaðið er gert úr. Það
dregur úr hættu á hjartasjúkdómum og  
æðakölkun. Þá eykur súkkulaðið kynlífs-
löngun og gerir brjóst kvenna stinn.  
                                       
Næringarsérfræðingurinn Arne Astrup,  
prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, 
sem stýrði rannsókninni segir að ekki 
sé vitað hvernig efnið hafi þessi áhrif
en það sem meira er súkkulaðið sé gott
vilji fólk grenna sig, það sé mettandi
og geti þannig dregið úr matarlöngun 

ég sko elska dökkt súkkulaði nammi namm hehe 8)

annars gladdi þetta mig alveg rosalega mikið þegar ég var að lesa þetta.. því að ég er búin að vera heldur mikið niðri í dag og allt svo hrikalega erfitt eitthvað.... sponsi er búinn að vera voðalega súr í kvöld og grét í næstum 5 tíma :S og það tekur voðalega mikið á... þar sem að þetta er búið að vera stanslaust frá því á mánudaginn og karlpungurinn alltaf að vinna:S frekar erfitt að sinna þeim eldri svona og ég er skíthrædd um að þetta hafi áhrif á þau :( en ég vona nú að þetta sé búið núna og að ferðalagið séu orsök þess ( tók uppá því í DK að gráta voðalega mikið fyrstu kvöldin) alltaf gott að vera bjartsýnn

Verð að viðurkenna það að DDV hefur ekki gengið eins og skyldi í dag... var svo lúin og var bara alveg annarstaðar í huganum.. en það þýðir ekkert annað en að taka sig á og halda áfram eiturhress í fyrramálið

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill
Átaksbloggarar